Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 1.161 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. júlí síðastliðinn. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á  0,9%. Frá þessu er greint í frétt á vef Þjóðskrár Íslands .

Þau sveitarfélög sem næst komu voru Kópavogur með 473 íbúa eða 1,3% fjölgun og Mosfellsbær með 377 íbúa eða 3,3% fjölgun.

Hlutfallslega mest fjölgun í Skagabyggð

„Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Skagabyggðar hlutfallslega mest eða um 10,2%, um 9 eða úr 88 í 97 íbúa.  Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi, um 6,8% og í Árneshreppi um 5,0%.  Þá fækkaði íbúum í 20 af 72 sveitarfélögum landsins frá 1. desember sl. Þess má geta að af þeim 72 sveitarfélögum í landinu þá eru 39 þeirra með íbúafjölda undir eitt þúsund. Af þeim fækkaði íbúum í 16 þeirra eða 41% sveitafélaga frá 1. desember sl," segir í fréttinni.

„Alls eru 23 sveitafélög  með íbúafjölda á bilinu 1.000 til 5.000 og fækkaði í 4 þeirra eða 17% sveitafélaga.  Engin fækkun varð í sveitafélögum með yfir 5.000 íbúa á umræddu tímabili."

Fjölgar í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum

„Lítilsháttar fjölgun hefur orðið í öllum landshlutum frá 1. desember sl. nema á Vestfjörðum þar sem fækkar um 9 manns.  Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi, þar fjölgaði um 600 íbúa eða 2,0%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 2.396 eða 1,1% og íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 508 eða 1,9%."