Iceland Express hefur ákveðið að fljúga til New York allan ársins hring.  Fram til 1. nóvember verður flogið fjórum sinnum í viku mánudaga til fimmtudaga, en  frá nóvemberbyrjun verður flogið þrisvar í viku mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Iceland Express.

„Þessari nýjung hefur verið tekið opnum örmum, “ segir Matthías Imsland forstjóri Iceland Express í fréttatilkynningu.  „Sætanýting okkar er vel yfir 90 prósent og það er langt umfram það, sem við þorðum að vona.  Nú þegar er uppselt í margar ferðir á næstu vikum.“

Fjöldi erlendra farþega Iceland Express hefur dvalið á Íslandi á leið sinni til og frá New York undanfarnar vikur.  Það er búhnykkur fyrir ferðamannaiðnaðinn, segir í tilynningu frá flugfélaginu.  "Ljóst er af bókunum, að fjölmargir farþegar hyggjast staldra við hérna næstu vikur á leið sinni yfir hafið."