Icelandair hefur í dag áætlunarflug til Washington, höfuðborgar Bandaríkjanna. Í fréttatilkynningu frá Icelandair segir að félagið hafi ákveðið að flugáætlun félagsins til Washington verður framlengd út árið 2011 og bætt við 70 flugum yfir haust- og vetrarmánuðina.

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, verður þátttakandi í fyrsta fluginu og í dagskrá á vegum Icelandair og Washingtonborgar við komuna vestur um haf í kvöld og á morgun.

"Við sjáum þarna tækifæri til vaxtar yfir vetrarmánuðina og erum að bregðast við sterkari eftirspurn en við gerðum ráð fyrir", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í fréttatilkynningu sem send var frá félaginu.

Ætla sér að efla ferðaþjónustu

"Við leggjum nú mikla áhersla á að efla íslensku ferðaþjónustuna yfir vetrarmánuðina og hér erum við að bæta verulega í framboð okkar utan háannatímans og ætlum okkur með þessari viðbót að fjölga ferðamönnum til landsins um nokkur þúsund.  Þetta aukna flug til Washington styrkir einnig flug milli Íslands og Evrópu vegna tengiflugs um Keflavíkurflugvöll og kallar því á aukið framboð á Evrópuleiðum Icelandair," er haft eftir Birki Hólm.

Icelandair mun fljúga til og frá Dulles flugvellinum sem er alþjóðaflugvöllur Washingtonborgar

Washington er áttunda borgin sem Icelandair flýgur áætlunarflug til í Norður Ameríku. Hinar borgirnar eru New York, Boston, Seattle, Minneapolis og Orlando í Bandaríkjunum, og Toronto og Halifax í Kanada. Í sumar flýgur Icelandair 53 flug vikulega til Norður Ameríku, mun fleiri en önnur flugfélög á norðurlöndum.