Icelandair sendi frá sér í dag tilkynningu þess efnis að félagið hyggist fjölga ferðum til og frá New York, Boston  og París. Mun flugfélagið því fljúga tvisvar á dag til þessara þriggja borga.

Fjölgun ferða gerir það að verkum að Icelandair verður með mesta tíðni allra flugfélaga sem fljúga milli New York og Norðurlandanna.

Fjölgun ferða verður á tímabilinu 1. júní til 12 september 2011.