Icesave-frumvarpið fer til 3. umræðu með 40 greiddum atkvæðum með frumvarpinu. Ellefu greiddu atkvæði gegn og sex sátu hjá. Kosið var um frumvarpið eftir 2. umræðu í dag.

Alþingi samþykkti 1. efnisgreins frumvarps um að heimila fjármálaráðherra að staðfesta með undirritun Icesave-samningana.

Bjarni Benediktsson sagði við atkvæðagreiðsluna það ekki vera létt verk að taka afstöðu til þess Icesave-samnings sem liggur fyrir. Það sé hans mat að það sé skynsamlegt að taka ákvörðun um að ljúka ágreiningi við Breta og Hollendinga með samkomulaginu. Hann sagði núverandi ríkisstjórn bera ábyrgð á fyrri samningum.

Atkvæði féllu þannig:

já:

Atli Gíslason, Álfheiður Ingadóttir, Árni Páll Árnason, Árni Johnsen, Árni Þór Sigurðsson, Ásbjörn Óttarsson, Ásta R. Jóhannesdóttir, Bjarni Benediktsson, Björgvin G. Sigurðsson, Björn Valur Gíslason, Einar K. Guðfinnsson, Guðbjartur Hannesson, Helgi Hjörvar, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Bjarnason, Jón Gunnarsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Katrín Júlíusdóttir, Kristján L. Möller, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Magnús Orri Schram, Mörður Árnason, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Ólína Þorvarðardóttir, Ólöf Nordal, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir, Tryggvi Þór Herbertsson, Valgerður Bjarnadóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Þráinn Bertelsson, Þuríður Backman, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson

nei:

Birgitta Jónsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Eygló Harðardóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Höskuldur Þórhallsson, Margrét Tryggvadóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Vigdís Hauksdóttir, Þór Saari

greiðir ekki atkvæði:

Birgir Ármannsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðmundur Steingrímsson, Pétur H. Blöndal, Sigurður Kári Kristjánsson, Siv Friðleifsdóttir

fjarvist:

Ásmundur Einar Daðason, Kristján Þór Júlíusson, Ragnheiður E. Árnadóttir, Róbert Marshall, Skúli Helgason

fjarverandi:

Lilja Mósesdóttir