Iðnaðarráðherra hefur skipað ráðgjafarhóp til að kanna nánar þann möguleika að tengja íslenska raforkukerfið við raforkukerfi meginlands Evrópu með lagningu sæstrengs. Í tilkynningu á vef ráðuneytisins segir að slík framkvæmd hafi um nokkurt skeið verið talin tæknilega möguleg en fyrst nú séu komnar fram jákvæðar vísbendingar um hagkvæmni verkefnisins. Ýmsar forsendur þurfi að staðfesta áður en unnt er að fullyrða endanlega um þjóðhagslega hagkvæmni verkefnisins.

Meðal þeirrar greiningar og rannsóknarvinnu sem ráðuneytið segir að leggja þurfi út í, vegna mögulegrar lagningar sæstrengs, er greining á samfélags- og þjóðhagslegum áhrifum, greining á tæknilegum atriðum og greining á lagaumhverfi og milliríkjasamningum. Ráðgjafarhópurinn á að skila áfangaskýrslu til iðnaðarráðherra fyrir lok árs 2012 um stöðu málsins.

Ráðgjafarhópurinn er skipaður eftirfarandi aðilum:

  • Gunnar Tryggvason, formaður, skipaður af iðnaðarráðherra,
  • Vilhjálmur Þorsteinsson, tilnefndur af þingflokki Samfylkingarinnar,
  • Álfheiður Ingadóttir, tilnefnd af þingflokki Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs,
  • Ólöf Nordal, tilnefnd af þingflokki Sjálfstæðisflokksins,
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, tilnefndur af þingflokki Framsóknarflokksins,
  • Baldvin Björgvinsson, tilnefndur af þingflokki Hreyfingarinnar,
  • Nils Gústavsson, tilnefndur af Landsneti,
  • Ragna Árnadóttir, tilnefnd af Landsvirkjun,
  • Pétur Reimarsson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins,
  • Þuríður Einarsdóttir, tilnefnd af BSRB,
  • Arnbjörg Sveinsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
  • Ásdís Kristinsdóttir, tilnefnd af Samorku,
  • Signý Jóhannesdóttir, tilnefnd af ASÍ,
  • Valdimar K. Jónsson, tilnefndur af Neytendasamtökunum,
  • Árni Finnsson, tilnefndur af Náttúruverndarsamtökum Íslands.