Indó, nýr íslenskur sparisjóður, opnaði formlega í dag og getur almenningur nú opnað reikning hjá sparisjóðnum. Til að byrja með mun indó bjóða upp á debetkortareikning en hyggst bæta við aukinni þjónustu í náinni framtíð.

„Viðskiptavinir indó geta stundað öll helstu bankaviðskipti líkt og hjá öðrum bönkum strax, eins og til dæmis að borga reikninga eða greiða fyrir vörur og þjónustu um allan heim með debetkortinu, símanum eða millifæra,“ segir í tilkynningu.

Indó segir að verðskráin sé gagnsæ og skýr. Engin færslugjöld séu á debitkortafærslum, gjaldeyrisálag eða önnur falin gjöld. Allar innistæður hjá indó eru tryggðar upp að 100 þúsund evrum líkt og hjá öðrum sparisjóðum og bönkum á Íslandi.

Indó var stofnað af Hauki Skúlasyni og Tryggva Birni Davíðssyni með þann tilgang að gera hlutina öðruvísi en bankar og er fyrsti íslenski sparisjóðurinn sem stofnaður er frá grunni síðan 1991.

„Félagið er með skýra sýn hvernig það ætlar að vinna og hvernig það ætlar ekki að vinna. Vegna einfaldrar yfirbyggingar þarf indó til dæmis ekki mikinn fjölda starfsfólks og getur þannig boðið viðskiptavinum betri kjör.“

„Við erum ótrúlega spennt fyrir því að vera farin formlega af stað og bjóðum alla nýja indóa velkomna í hópinn. Við Tryggvi unnum lengi í bankakerfinu, höfum verið hinum megin við borðið og sáum tækifæri til að gera hlutina allt öðruvísi. Okkur finnst kominn tími á að hugsa bankaþjónustu upp á nýtt og viljum breyta kerfinu þannig að það verði meira fyrir fólkið en minna fyrir báknið,“ segir Haukur Skúlason, annar stofnanda og framkvæmdastjóri indó.

„Við trúum því hægt sé að gera betur fyrir venjulegt fólk og þjónusta það á einfaldan og gagnsæjan hátt, og erum sannfærð um að það sé grundvöllur fyrir því að bjóða bankaþjónustu án þess að okra á fólki. Við vitum að það tekur tíma að byggja upp sparisjóð og við ætlum að gera það vel og vanda okkur. Við horfum spennt til framhaldsins,“ segir Tryggvi Björn Davíðsson, annar stofnanda indó.