Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fer í geislameðferð á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í næstu viku, en sjúkrahúsið hefur yfir að ráða tækjum sem ekki eru til hér á landi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en Ingibjörg Sólrún heldur utan á fimmtudag og gert er ráð fyrir að hún verði 3-5 daga frá vinnu.

Í tilkynningunni kemur fram að um er að ræða lokahnykk á meðferð sem hófst í lok september sl. þegar Ingibjörg Sólrún gekkst undir aðgerð til að fjarlægja heilaæxli.