Bílabúð Benna ehf. hefur ákveðið að inkalla 67 Chevrolet Spark bifreiðar árgerð 2013 til 2014 vegna hugsanlegrar bilunar í gírkasapúða viðkomandi bíla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neytendastofu.

Í tilkynningunni segir að ef bilunarinnar verður vart þá getur gírkassinn færst til og þá gæti mögulega driföxull farið úr sambandi og bifreiðin því orðið óökuhæf. Skipt verður um gírkassapúða í bifreiðinni eiganda að kostnaðarlausu en viðkomandi bifreiðaeigendum hefur nú þegar verið sent bréf vegna þessarar innköllunar.

Samkvæmt tilkynningunni er hægt að fá nánari upplýsingar um innköllunina hjá þjónustufulltrúum í verkstæðismóttöku Bílabúðar Benna ehf.