Sveitarfélagið Ísafjarðarbær hefur samið við Nýherja um alrekstur á upplýsingakerfum og endurnýjun á miðlægu tölvuumhverfi. Þá var líka samið um Rent a Prent prentþjónustu, sem er umhverfisvæn prentþjónusta og felur í sér lækkun á árlegum prentkostnaði.

Fram kemur í tilkynningu frá Nýherja að í framhaldinu muni fyrirtækið hefja sýndarvæðingu á öllum útstöðvum starfsmanna sveitarfélagsins en þær eru um 350. Sýndarútstöðvar eru smávélar sem nota mun minna rafmagn en venjulegar útstöðvar, enda eru diskar og öflugir örgjörvar óþarfir.

Til þess að sinna viðhalds- og tækniþjónustu fyrir sveitarfélagið hefur Nýherji ráðið starfsmann sem verður með aðsetur á Ísafirði.