Stikla úr myndinni Noah, sem tekin var upp að hluta hér á landi, hefur verið birt á YouTube. Myndin verður frumsýnd á næsta ári. RÚV segir að um sé að ræða fyrstu stikluna sem birt er.

Tökur hér á landi fóru fram í fyrrasumar. Aðalleikarar myndarinnar, þau Russell Crowe, Jennifer Connelly og Emily Watson voru öll stödd hér á landi vegna þeirra.

slenska kvikmyndaframleiðslufyrirtækið TrueNorth aðstoðaði við upptökurnar. Það ár var annasamt fyrir TrueNorth en hluti úr fjórum stórum kvikmyndum voru teknar hér upp. Auk Noah voru það Secret Life of Walter Mitty, framhaldið af Thor og Oblivion.

Hér að neðan má sjá stiklu úr myndinni.