Íslandsbanki Fjármögnun hefur ákveðið að senda ekki út greiðsluseðla vegna gjalddaga í september á bílalánum og kaupleigusamningum í erlendri mynt.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en áður hafði bankinn frestað gjalddögum í júlí og ágúst á fyrrgreindum lánum, þar sem óvissa ríkti um hvernig haga skyldi endurreikningi þeirra í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 16. júní um ólögmæti lánanna.

Fram kemur að Íslandsbanki Fjármögnun hafi þegar undirbúið endurreikning ofangreindra lána í júlí eftir tilmæli frá Seðlabanka Íslands og FME og að þeirri vinni miði vel.

Þann 6. september nk. varði hinsvegar tekið fyrir í Hæstarétti mál sem snýr að vaxtaþætti bílalána og kaupleigusamninga í erlendri mynt. Niðurstaða Hæstaréttar muni hafa áhrif á endurútreikninga og því er ekki hægt að ljúka við þá fyrr en dómsniðurstaða liggur fyrir síðar í sama mánuði. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að fresta gjalddaga fyrir september eins og áður segir.