Íslandsbanki lauk í dag útboði á tveimur víxlum til 4 og 6 mánaða. Hvor flokkur þeirra getur að hámarki orðið 1,5 milljarðar króna að nafnvirði.

Fram kemur í tilkynningu að útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 4 mánaða víxillinn á 5,85% flötum vöxtum og 6 mánaða víxillinn á 5,90% flötum vöxtum. Tilboðum var tekið í 4 mánaða víxilinn upp á 260 milljónir króna að nafnvirði og að fjárhæð 300 milljónir króna í 6 mánaða víxilinn.

Fyrir útboðið námu útistandandi víxlar Íslandsbanka 7,54 milljörðum króna.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta.