Íslandsbanki hefur boðað til hluthafafundar klukkan 10 í dag, þar verður kosið um tillögu stjórnar þess efnis að nafn félagsins verði Glitnir banki hf., segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Nýtt auðkenni hlutabréfa félagsins verður GLB. Samhliða hefur félagið einnig óskað eftir að breyta auðkenni sínu sem aðili að Kauphöllinni í GLB. Breytingin á auðkennum hlutabréfa bankans og auðkenni hans sem aðila að Kauphöllinni verður virk á morgun, að því gefnu að samþykki hluthafafundar.