Um áramótin voru íbúar landsins 321.857 talsins samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þeim fjölgaði um 0,7% frá sama tíma árið áður eða um 2.282 einstaklinga.

Árið 2012 fæddust 4.533 börn, 2.317 drengir og 2.216 stúlkur, en 1.952 létust. Fæddir umfram dána voru því 2.581. Í fyrra fluttust 6.276 utan en 5.957 til landsins. Brottfluttir umfram aðflutta voru því 319 árið 2012.

Drengir sem fæddust í fyrra geta vænst þess að ná 80,8 ára meðalaldri en stúlkur eiga hins vegar von á að ná að meðaltali 83,9 ára aldri.