KALDA
KALDA
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Íslensk hönnun og framleiðsla undir merkinu KALDA verður seld í fataversluninni Liberty í London. Tæp þrjú ár eru síðan framleiðsla hófst á fötum undir vörumerkingu KALDA og fyrir skömmu var gerður samningur við Liberty um sölu á nýjustu vorlínu KALDA. Verslunin Liberty, sem er á Regent Street, er ein af sögufrægustu verslunum í London og er þekkt fyrir gott úrval af hátískufatnaði ásamt sígildum fatnaði.

Systurnar Katrín Alda og Rebekka Rafnsdætur standa að vörumerkinu KALDA og reka einnig verslunina Einveru á Laugaveginum.