Íslenskir aðalverktakar og Marti Contractors áttu lægsta tilboðið í gerð Bolungarvíkurganga, tilboð þeirra hljóðaði uppá  3.479.000.000.- kr eða tæpa þrjá og hálfan milljarð króna. Það er eða 87,88% af áætluðum verktakakostnaði en áætlaður kostnaður var 3.959.000.000 króna. Tilboð í Bolungarvíkurgöng (Óshlíðargöng) voru opnuð hjá Vegagerðinni rétt áðan. Vegagerðin auglýsti síðsumars eftir þátttakendum í forvali vegna jarðganga milli Hnífsdals og Bolungarvíkur, ásamt byggingu tilheyrandi forskála og vega. Um er að ræða 8,7 m breið, 5,1 km löng jarðgöng, byggingu um 310 m langra steinsteyptra vegskála, gerð um 3,0 km langra vega og byggingu tveggja um 15 m langra steinsteyptra brúa.

Fimm verktakar og verktakahópar óskuðu eftir því að taka þátt í forvalinu. Fjórir voru valdir.