Tap Jeratúns hf. á fyrrihluta ársins 2011 var 11,6 milljónir króna og í lok þess var eigið fé neikvætt um sem nam 32 milljónir króna samkvæmt árshlutareikningi. Ástæða fyrir þessu tapi má rekja til mikils fjármagnskostnaðar og of lágrar húsaleigu . Á hluthafafundi í félaginu var hlutafé aukið um 21 milljónir króna.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok tímabilsins námu eftirstöðvar lána 483,5 milljónir króna og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru 54,5 milljónir króna á ársgrundvelli með virðisaukaskatti og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.