Jóhann Steinar hefur verið ráðinn sjóðstjóri hjá Stapa lífeyrissjóði. Jóhann Steinar lauk B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005 og M.Sc. gráðu í fjármálum frá Lunds Universitet árið 2012 og hefur auk þess lokið prófum í verðbréfaviðskiptum.

Jóhann Steinar starfaði áður í fjárstýringu og eigin viðskiptum Straums fjárfestingarbanka hf., markaðsviðskiptum Stoða hf. og við fjárfestingar og viðskiptaþróun hjá Tryggingamiðstöðinni hf.