Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, segist ekki vera sáttur við að yfirgefa Haga en eins og tilkynnt var fyrir stundu hefur hann látið af störfum hjá Högum. Samningur þar að lútandi milli Arion banka hf og Jóhannesar Jónssonar var undirritaður í dag.

„Arion banki hefur tilkynnt mér að félagið fari nú í söluferli. Ég hef fullan hug á að gera tilboð í félagið og þar með eignast Bónus aftur,“ segir Jóhannes í tilkynningu.

Arion banki eignaðist hlut í Högum í október 2009 við yfirtöku á eignarhaldsfélaginu 1998, sem átti 95,7 % í félaginu. Í samkomulaginu felst meðal annars, að Jóhannes kaupir hlut Haga í SMS, sem rekur matvörubúðir í Færeyjum. Einnig kaupir Jóhannes hluta af sérvörusviði Haga.

Með þessum samningi lýkur aðkomu Jóhannesar að rekstri Haga og þar með Bónus, sem hann stofnaði fyrir rúmum tuttugu árum.

,,Bónus var byggð á hugmyndafræði og þekkingu sem við feðgar höfðum þróað með okkur um skeið fyrir opnun fyrstu verslunarinnar,“ segir Jóhannes í tilkynningunni.

„Bónus hefur alla tíð verið vel rekið félag og staðið við allar sínar skuldbindingar, átt í senn frábær og einstök samskipti við viðskiptavini sína og birgja. Það er sérstök tilfinning að þurfa að kveðja Bónus og ég segði ósatt, ef ég segðist ánægður með þá stöðu.“