Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss, hefur í dag ásamt erlendum fjárfestum greitt til Arion banka hf. kaupverð á helmingshlut í færeyska verslunarfélaginu SMS.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jóhannesi en SMS er stærsta verslunarfyrirtæki í Færeyjum og rekur meðal annars verslanir undir nafni Bónuss. Í tilkynningunni er fyrirtækið sagt í góðum rekstri og með sterkan efnahag. Jóhannes segir þetta spennandi verkefni og félagið hafi áhuga á að auka innflutning á íslenskum vörum til Færeyja.

SMS rekur níu verslanir í Færeyjum, ásamt því að reka framleiðslubakarí og kjötvinnslu. Velta félagsins á þessu ári er um 7 milljarðar íslenskra króna. Félagið er skuldlaust.