John O'Brien hefur tekið við sem stjórnarformaður Century Aluminium af Craig Davis, að því er fram kemur í tilkynningu.

O'Brien, sem hefur setið í stjórn félagins síðan árið 2000, er framkvæmdastjóri ráðgjafa- og fjárfestingafyrirtækisins Inglewood Associates.

Century Aluminum Company rekur álver í Bandaríkjunum og á Íslandi. Félagið er skráð á íslenska First North hlutabréfamarkaðinn og NASDAQ í Bandaríkjunum.