Patience Wheatcroft, viðskiptaritstjóri The Times í Bretlandi, segir Jón Ásgeir Jóhannesson hafa lyst á áhættu. Jón Ásgeiri Jóhannessyni, og öðrum sakborningum í Baugsmálinu, verða lesnar ákærur fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og málið verður þingfest.

Wheatcroft segir fyrirtæki í örum vexti oft ekki hugsa fyrst um að bókhaldið sé í lagi og að sumar ákærurnar séu frekar smásmugulegar. Hún bendir þó á að ónákvæmar bókhaldsvenjur geta verið hættulegar, sem og hraðskreiðir bílar og snekkjur. ?En herra Jóhannesson hefur svo sannarlega lyst á áhættu," segir Wheatcroft.