Jón Ingi Herbertsson tekur við umsjón með fjárfesta- og almannatengslum Marels frá og með 1. september næstkomandi.

Hann hefur gegnt starfi ristjóra hjá Marel síðan í apríl 2008. Áður stýrði hann upplýsingaþjónustu við almenning hjá Sameinuðu Þjóðunum í Genf og var fulltrúi við upplýsingadeild Sameinuðu Þjóðanna í New York.

Jón Ingi er með MBA gráðu frá Baruch College í New York og BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.