Auglýsingastofurnar Jónsson & Le'macks og Pipar/TBWA hafa gert samkomulag um sameiginleg birtingainnkaup og rannsóknir. Ratsjá, dótturfyrirtæki Jónsson & Le'macks, hefur annast birtingaþjónustu um árabil og mun sameiginlegt félag í eigu auglýsingastofanna tveggja starfa undir merkjum Ratsjár Media.

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu félaganna. Þar kemur einnig fram að með samstarfinu verður Ratsjá Media meðal stærstu birtingarfyrirtækja landsins.