Júpíter rekstrarfélag hf. hefur stofnað fagfjárfestasjóðinn JR veðskuldabréf I. Sjóðurinn fjárfestir í veðskuldabréfum útgefnum af fyrirtækjum þar sem undirliggjandi veð eru fasteignir.

Fjármögnun sjóðsins lauk í desember 2015, en sjóðurinn hefur nú keypt safn veðskuldabréfa eftir að áreiðanleikakönnun lauk. Þrettán fjárfestar koma að sjóðnum, en hópurinn samanstendur af lífeyrissjóðum og fagfjárfestum.