Katrín Anna Guðmundsdóttir vill taka fram að hún hefur aldrei tekið þátt í flokksstarfi stjórnmálaflokka, hvorki Vinstri grænna né annarra.

Í fréttum af fólki í Viðskiptablaðinu í dag er því haldið fram að Katrín Anna sé liðsmaður VG. Katrín Anna segir það ekki rétt. Hún starfi þvert á alla stjórnmálaflokka fyrir hugsjónir um jafnrétti.

Nú um stundir vinnur hún tímabundið sem verkefnastjóri við gerð kynjaðrar fjárlagagerðar í fjármálaráðuneytinu.