Katrín Dóra Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin starfsmannastjóri Norðlenska og mun taka við því starfi í maí n.k. og verður með aðsetur á aðalskrifstofu Norðlenska á Akureyri. Katrín Dóra er fædd árið 1965 á Akureyri. Hún lauk prófi í iðnrekstrarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 1993 og síðan viðskipta- og rekstrarfræði árið 2002 frá Háskólanum á Akureyri.

Katrín Dóra hefur veitt Símenntunarstöð Eyjafjarðar forstöðu frá árinu 2000.