Katrín Jakobsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér sem formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Eins og fjallað var um í gær tilkynnti Steingrímur J. Sigfússon að hann hyggst hætta sem formaður flokksins. Kosið verður um nýjan formann á landsfundi flokksins um næstu helgi.

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér sem formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á landsfundi sem haldinn verður í Reykjavík 22.-24. febrúar næstkomandi. Ég hef verið varaformaður hreyfingarinnar frá hausti 2003 og setið á þingi síðan 2007. Undanfarin fjögur ár hef ég gegnt embætti mennta- og menningarmálaráðherra í ríkisstjórn Vinstri-grænna og Samfylkingar en á því kjörtímabili hefur verið unnið ötullega að því að reisa landið við eftir efnahagshrunið 2008. Næsta kjörtímabil er verk að vinna við að bæta kjör almennings á grunni sjálfbærs samfélags,“ segir í tilkynningu frá Katrínu.