Fjármálagerningar Straums-Burðaráss hafa verið færðir af Athugunarlista Kauphallarinnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en í gær tilkynnti Fjármálaeftirlitið (FME) að í dag yrðu heimiluð á ný viðskipti með fjármálagerninga félagsins.

Þá tilkynnti FME einnig að viðskipti með fjármálagerninga Exista yrði einnig heimilaður í dag.