Kaupþing banki hf. (?Kaupþing?) hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í hollenska bankanum, NIBC Holding BV (?NIBC?) fyrir um það bil 2.985 milljónir evra. Í tilkynningu kemur fram að starfsemi NIBC fellur einkar vel að starfsemi Kaupþings hvort heldur sem litið er til landfræðilegrar dreifingar, vöruframboðs eða fyrirtækjamenningar.

NIBC er fyrirtækjabanki, sem var stofnaður 1945. Hann leggur áherslu á þjónustu við meðalstór fyrirtæki í Vestur-Evrópu. Hjá bankanum starfa 718 manns og er hann með starfstöðvar í Haag, Lundúnum, Brussel, Frankfurt, New York og Singapúr. NIBC býður framsæknar lausnir á sviði fjármögnunar, ráðgjafar og eignastýringar til fyrirtækja, fjármálastofnana, stofnanafjárfesta og fjársterkra einstaklinga. Seljandi er fjárfestahópur undir forystu J.C. Flowers & Co. LLC (?JCF & Co.? eða ?seljandi?).

Í frétt Kaupþings kemur fram að væntanleg yfirtaka á NIBC muni efla starfsemi Kaupþings og dreifa áhættu í rekstrinum. Hún mun tryggja stöðu hans sem leiðandi fyrirtækja? og fjárfestingarbanka í þjónustu við lítil og meðalstór fyrirtæki í Evrópu. Áþekk fyrirtækjamenning mun auðvelda sameinuðum banka að nýta sér fjölbreytt vöruframboð beggja banka og mismunandi aðgang að mörkuðum.