Kaupþing banki hefur ákveðið að hækka vexti verðtryggðra inn - og útlána frá 1. maí 2007 að því er segir í frétt bankans. Vextir á verðtryggðum innlánum hækka um allt að 0,50 prósentustig. Þannig hækka vextir á verðtryggðum Bústólpareikningi úr 6,0% í 6,50%. Vextir á Framtíðarreikningi og Lífeyrisbók hækka úr 6,25% í 6,60%.


Auk þess hækka breytilegir kjörvextir verðtryggðra skuldabréfalána um 0,50 prósentustig, úr 7,50% í 8,00%.

Hækkun á verðtryggðum vöxtum er gerð í ljósi þess að raunstýrivextir Seðlabankans, miðað við verðbólgu undanfarinna mánaða, hefur hækkað mikið. Má þar nefna að nafnstýrivextir Seðlabanka eru 14,25% en síðustu 12 mánuði hefur verðbólga mæstu um 5,3%.


Vextir á íbúðalánum Kaupþings breytast ekki og eru eftir sem áður 4,95%