Samningaviðræður Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambandsins halda áfram í dag. Rætt hefur verið um þriggja ára samning með endurskoðunarákvæði eftir eitt ár.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í frétt á heimasíðu samtaka atvinnulífsins að aðalmarkmiðið sé að kaupmáttur launa haldist og ganga þurfi frá ákveðnum útgangspunktum. Fundað hafi verið með formönnum landssambandanna og stærstu félaga fyrir helgi. Fundarhöld haldi áfram í vikunni.