Stjórn Teymis hf. hefur ákveðið að gefa út kauprétti að hlutafé í félaginu til lykilstarfsmanna samstæðunnar.

Rétthöfum er heimilt að nýta þriðjung kaupréttar á hverju ári í þrjú ár og er fyrsta innlausn í nóvember 2008.

Rétturinn er á genginu 6,54 kr. á hlut sem er lokagengi 8. nóvember 2007.

Skilyrði fyrir innlausn er að starfsmaður hafi ekki látið af störfum fyrir innlausnardag.

Samtals gaf stjórnin út kauprétti fyrir 10 milljónir hluta.