KB banki hefur ákveðið að lækka vexti verðtryggðra inn- og útlána frá og með 11. september næstkomandi um 0,15 til 0,20 prósentustig. Verðtryggðir kjörvextir skuldabréfalána munu lækka um 0,20 prósentustig og verða 5,00%.

Vextir á verðtryggðum innlánsreikningum lækka um 0,15 til 0,20 prósentustig, mismunandi eftir innlánsformum. Nefna má að innlánsvextir á verðtryggðum 48 mánaða reikningi lækka um 0,20% og verða eftir breytingu 3,60%.

Í tilkynningu frá KB banka segir að ákvörðun um vaxtalækkun nú sé tekin í ljósi þess að verðtryggðir markaðsvextir til langs tíma hafi verið að lækka og taki bankinn meðal annars mið af þeirri þróun við sínar vaxtaákvarðanir.
Ekki er um breytingu að ræða á óverðtryggðum vöxtum.