Hagnaður KB banka eftir skatta á fyrri helmingi ársins nam 24.766 miilljónum króna, jókst um 280,1% miðað við sama tímabil 2004. Hagnaður eftir skatta á öðrum ársfjórðungi 2005 nam 13.673 m.kr, jókst um 292,0% milli ára.

Hagnaður á hlut á fyrri helmingi ársins nam 37,9 krónum samanborið við 14,9 krónur miðað við sama tímabil 2004. Þetta þýðir að hagnaður á hvern hlut hefur 2,5-faldast á milli ára.

Arðsemi eigin fjár var 36,1% á fyrri helmingi ársins, en var 30,7% á fyrri helmingi ársins 2004.

Hreinar rekstrartekjur á fyrri helmingi ársins 2005 námu 45.946 m.kr., jukust um 128,8% miðað við sama tímabil árið 2004.

Rekstrarkostnaður nam 13.940 m.kr. á fyrri helmingi ársins, jókst um 35,9% miðað við sama tímabil í fyrra.

Kostnaðarhlutfall á fyrri helmingi ársins var 30,3%, samanborið við 51,1% á sama tímabili í fyrra.

Heildareignir námu 1.899 milljörðum króna þann 30. júní 2005 og hafa aukist um 22,2% frá áramótum.

Á fyrri helmingi ársins mynduðust 70% af rekstrartekjum bankans utan Íslands.

Kaupþing banki hefur yfirtekið breska bankann Singer & Friedlander Group plc og mun rekstur hans koma inn í samstæðureikning Kaupþings banka frá og með þriðja ársfjórðungi.

Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri segir uppgjörið sýna að rekstur bankans hafi gengið vel á öllum helstu markaðssvæðum: "Arðsemi eigin fjár á fyrri helmingi ársins er 36%, sem er vel viðunandi, og á sama tíma heldur kostnaðarhlutfall áfram að lækka. Kaupin á breska bankanum Singer & Friedlander marka tímamót og færa okkur nær því markmiði að vera í hópi leiðandi fjárfestingarbanka í Norður-Evrópu. Með Singer & Friedlander bætast um 600 öflugir starfsmenn við þann trausta hóp sem fyrir er í samstæðunni og starfar nú meirihluti starfsfólks Kaupþings banka utan Íslands. Traustur undirliggjandi rekstur bankans mun verða þessu öfluga starfsfólki gott veganesti í áframhaldandi sókn.?