Tvö jafnstór viðskipti voru með Kaupþing [ KAUP ] og Landsbankann [ LAIS ] í morgun eða 2,3 milljarða króna, samkvæmt upplýsingum Markaðsvaktar Mentis.

Kaupgengið var í báðum tilvikum dagslokagengi gærdagsins.

Kaupþingsbréfin voru keypt á 763 en kaupin á Landsbankanum fóru fram á genginu 23,05.

Kaupþing hefur lækkað um 10,9% það sem af er ári og Landsbankinn um 33,3% á sama tíma.