Á hluthafafundi í Exista sem haldinn var í dag var ákveðið að breyta nafni félagsins og heitir það nú Klakki ehf. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var fjölmiðlum.

„Með nafnbreytingunni er nýtt eignarhald og hlutverk félagsins undirstrikað. Eftir nauðasamninga sem kröfuhafar félagsins samþykktu á síðasta ári er Klakki nú nær alfarið í eigu íslenskra og erlendra fjármálastofnana og lífeyrissjóða. Jafnframt hafa verkefni félagsins breyst og er sjónum nú einvörðungu beint að stýringu á núverandi eignasafni Klakka," segir í tilkynningunni.

Helstu eignir félagsins eru Skipti hf. (móðurfélag Símans, Mílu og Skjásins),Vátryggingafélag Íslands hf., Líftryggingafélag Íslands hf. og Lýsing hf.