Fjárfestirinn Högni Pétur Sigurðsson heldur áfram að kaupa hlutabréf í Icelandair samsteypunni. Á sama tíma minnkar hlutur PAR Capital Management. Frá þessu er greint á vef Túrista .

Högni hefur keypt rúmlega fjórtán milljón bréf í Icelandair Group síðustu fjórar vikur. Í dag fer hann því samtals fyrir 3,64 prósent hlut í Icelandair samkvæmt nýjum lista yfir tuttugu stærstu hluthafa samteypunnar. Bréf Högna Péturs eru skráð á hann persónulega og svo tvö eignarhaldafélög í hans eigu, Nautica og Zukunft.

Bandaríski vogunarsjóðurinn PAR Capital Managment var stærsti hluthafinn í íslensku samsteypunni í byrjun kreppunnar með 13,5 prósent hlut. Sjóðurinn hefur aftur á móti selt bréf sín í smáskömmtun allt frá því í vor. Nú er hlutur PAR Capital kominn niður í 11,04 prósent og hefur sjóðurinn losað sig við um 19 milljónir hlutabréfa í Icelandair síðastliðinn mánuð.