KPMG hefur keypt RR ráðgjöf, sem er sérhæft ráðgjafafyrirtæki í þjónustu við sveitarfélög. Við kaupin mun RR ráðgjöf sameinast KPMG og starfsfólk fyrirtækisins mun koma til starfa á ráðgjafarsviði KPMG. Þetta kemur fram í tilkynningu.

RR ráðgjöf var stofnað af Róberti Ragnarssyni sem hefur reynslu af starfsemi sveitarfélaga og er meðal annars með yfir 10 ára reynslu sem bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum og í Grindavíkurbæ. Starfsfólk RR ráðgjafar hefur byggt upp þekkingu á stjórnsýslu, rekstri og málefnum sveitarfélaga, að því er kemur fram í tilkynningu.

KPMG hefur um margra ára skeið verið framarlega í endurskoðun og margvíslegri ráðgjöf við sveitarfélög. Í tilkynningu segir að sameinaður ráðgjafahópur RR ráðgjafar og KPMG hafi mikla reynslu og þekkingu sem nýst getur sveitarfélögum í gegnum þær breytingar.

Róbert Ragnarsson, stofnandi RR ráðgjafar:

„Markmið mitt hefur alltaf verið að sinna fjölbreyttum þörfum sveitarfélaga. Það hefur gengið vel og mínir viðskiptavinir verið ánægðir með persónulega þjónustu. Mitt mat að verkefni næsta kjörtímabils verði þannig að nauðsynlegt sé að hafa aðgang að þverfaglegri þekkingu á sviði stjórnsýslu, velferðarþjónustu, fjármála og stafrænna lausna. Sú þekking er til hjá sameinuðum hópi ráðgjafa KPMG og RR ráðgjafar."

Magnús Kristjánsson, meðeigandi hjá KPMG og sérfræðingur í málefnum sveitarfélaga:

„Við erum afar stolt af því að hafa fengið starfsfólk RR Ráðgjafar til liðs við okkur. Þau hafa náð góðum árangri og njóta trausts og virðingar á vettvangi sveitarfélaganna. Saman munum við geta eflt þjónustu okkar við sveitarfélögin í landinu enn frekar með breiðari hópi öflugra ráðgjafa með sérþekkingu á því sviði."