Kristján Loftsson, forstjóri Hvals og varaformaður stjórnar HB Granda, hefur tekið við stjórnarformennsku hjá HB Granda. Hann tekur við stjórnarformennskunni af Árna Vilhjálmssyni sem lést í gær.

Fram kemur í tilkynningu frá HB Granda að í stað fimm muni því fjórir skipa stjórn félagsins fram að næsta aðalfundi. Auk Kristjáns Loftssonar sitja í stjórninni Halldór Teitsson, Jóhann Hjartarson og Hann Ásgeirsdóttir.