Gengi krónunnar hefur styrkst um 0,36% það sem af er degi og stendur gengisvísitalan í 216,86 stigum. Vísitalan hefur ekki farið undir 217 stigin á árinu og hefur gengi krónunnar ekki verið sterkara síðan undir lok árs í fyrra. Vísitalan hefur ekki farið undir 200 stigin síðan á vordögum 2009.

Þrátt fyrir þetta gegnir ekki sama máli um gengi annarra gjaldmiðla gagnvart krónunni.