Gengisvísitalan var 157,6 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 2,6% frá opnun í morgun 3,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan hélt áfram að veikjast í morgun en eftir hádegi tók hún frekari dýfu niður á við.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Gildi dagsins í dag miðast þó við markaðsgengi við lokun gjaldeyrismarkaða. Opinbert gengi var í morgun 153,2 stig en var í gær 151,9 stig.

Krónan hefur veikst um 0,8% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag. Frá áramótum hefur hún veikst um 22,6%

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 77,3 krónum, Evran í 122,8 krónum og Sterlingspundið í 153,6 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,9 krónum, japanskt jen í 0,73 krónum og danska krónan í 16,5 krónum.