Gengisvísitalan er nú 156,3 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1,5% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 1,7% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 156,7 stig en var í gær 159 stig.

Krónan hefur nú styrkst um 2,2% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 80,7 krónum, Evran í 120,4 krónum og Sterlingspundið í 151,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,3 krónum, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,1 krónu.