Gengisvísitalan er nú 159,1 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,8% frá opnun í morgun og um 1,5% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,3 stig en var 156,8 stig í gær.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 79,9 krónum, Evran í 123,7 krónum og Sterlingspundið í 156,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 75,8 krónum, japanskt jen í 0,7 krónum og danska krónan í 16,6 krónum.