Gengisvísitalan er nú 147,3 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og hefur krónan því styrkst um 0,4% frá lokun markaða á föstudag en 0,5% frá opinberu gengi á föstudaginn.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 147,2 stig en var á föstudag 148 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 115 krónum, Bandaríkjadalur í 73,4 krónum og Sterlingspund í 146 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71 krónu og japanskt jen í 0,7 krónum.