Gengisvísitalan var 151,5 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentís og hefur krónan því styrkst um 0,5% frá lokun markaða á föstudag en 1,4% frá opinberu gengi s.l. föstudag.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 152,5 stig en var á föstudag 153,7 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 118,9 krónum, Bandaríkjadalur í 78,8 krónum og Sterlingspund í 148,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 74 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum