Gengisvísitalan er nú 150,2 samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,8% frá opnun markaða í morgun en 0,6% frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 150,5 stig var á föstudag 149,2 stig.

Krónan hefur því veikst um 2,8% milli vikna sé miðað við gengi á mörkuðum í dag og opinbert gengi s.l. mánudag.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 117,2 krónum, Bandaríkjadalur í 75,4 krónum og Sterlingspundið í 148 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 72,4 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum.