Gengisvísitalan var 146,3 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og stendur krónan nánast í stað frá opnun markaða í morgun en veikist aftur á móti um 0,3% frá opinberu gengi Seðlabankans fyrir helgi.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 145,9 stig líkt og á föstudag.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 114,5 krónum, Bandaríkjadalur í 72,5 krónum og Sterlingspundið í 143,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 70,8 krónum og japanskt jen í 0,70 krónum.