Gengisvísitalan er nú 207,1 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,5% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,2% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því fyrir helgi.

Krónan stóð í stað við lokun markaða á föstudag en hafði engu að síður veikst um 13% í síðustu viku. Hæst hefur gengisvísitalan farið í 207,4 stig í morgun en lægst í 205,9.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 207,1 stig, sem er það hæsta frá upphafi, en var á föstudag 206,7 stig, sem þá var jafnframt það hæsta frá upphafi.

Krónan hefur nú veikst um 9,8% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 114,3 krónum, Evran í 155,3 krónum og Sterlingspundið í 200,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 100 krónum, japanskt jen í 1,1 krónu og danska krónan í 20,8 krónum.